tobiaz.bloggar.is
Í myrkrinu leynast tćkifćri ..Jón Sigurđsson
Jæja þá er þessum kosningum lokið og fall okkar Framsóknarmanna var hátt eins og búast mátti kannski við .. Ég tel að þetta sé góður tímapunktur hjá okkur Framsóknarmönnum til þess að setjast niður og spá hvert við viljum stefna með þennan flokk, hvernig við viljum móta framtíðina .. Sérstaklega koma Framsókn illa út á höfuðborgarsvæðinu og er þörf á miklu átaki hvað varðar að rífa upp fylgið þar .. Það er aldrei að vita nema maðru helli sér útí pólitíkina á fullu og setji stefnuna með flokkum á kosningar eftir 4 ár en hvað gerist verður bara að koma í ljós ..Ég fékk bréf frá HR þar sem mér var tilkynnt að mér hefði verið veitt inn í skólann .. Bara gaman að því að fara að setjast aftur á skólabekk og láta matreiða allskonar sullumbull ofan í sig svo maður geti orðið virkari þegn í samfélaginu ..
Ég er þessa dagana að spá í útfærslur á laginu Inn um gluggann en ég og Guðrún Árný vorum að spá í þetta lag og duttum niður á smá pianóversion af laginu og lagðist það bara nokk vel í okkur .. Ég er í smá samkurli með Pétri Hjaltested þessa dagana og aldrei að vita hvað kemur út úr því ..
Allavega have fun í bili ..
kv
jónsig
Málefni og rökstuđningurJón Sigurđsson
Merkilegt finnst mér þegar menn hópast til þess að úthúða Framsókn og lofa vinstriflokkana, án þess þó að geta komið með e-r rök af viti. Það er talað um að landinu sem hrikalega illa stjórnað og allt eftir því en það eru engin rök fyrir mér ég vil fá að sjá tölulegar staðreyndir sem sanna og sýna fram á þessa hluti. Menn tala um verðbólguna en því miður var hún nauðsynlegur þáttur eftir oðagot bankana á fasteignamarkaði eftir að íbúðarlánasjóður fór að veita 100% lán.Málið er þannig að þegar núverandi stjórn tók við fyrir ca 12 árum þá ríkti mikill óstöðuleiki í efnahagslífinu, mikið atvinnuleysi og lífsgæði landans voru ekki neitt til að hrópa húrra fyrir. Það hefur einfaldlega tekið þessi 12 ár að byggja þennan trausta grunn sem nú kominn er, það hefur tekið ca 12 ár að koma ríkissjóði í þannig ástand að hann er að nálgast núllið, það hefur tekið þessi 12 ár að ganga frá flestum þessara erlendu skulda sem voru að drekkja ríkissjóði og landinu á sínum tíma. Allt þetta hefur auðvtiað kostað sitt sem dæmi hafa hlutir eins og heilbrigðiskerfið, hlutur aldraðra og öryrkja setið á hakanum vegna takmarkaðra peninga, verðbólga, einkavæðing fyrirtækja og allt sem því fylgir. En málið er að á næsta tímabili geta Framsókn & Sjálfstæðisflokkurinn leyft sér að nota fé úr ríkissjóði í þessa ofangreindu þætti þar sem að það er kominn nógu sterkur grunnur fyrir því sem var ekki fyrir hendi áður, hedlur má ekki gleyma hlutum aðeins kaupmáttaraukningu launa á þessum tíma, lengingu fæðingarorlofs, feðraorlofi, fleirri tækifæri til menntunnar osfrv.. Ég heyri Steingrím J og VG tala eindalaust um spillingu landsins en ég hef ekki heyrt neinar tillögur hjá honum um hvernig hann ætlar ef við sleppum stóriðjunni að skapa fólki úti á landi sama fjölda atvinnutækifæra og stóriðjan gerir, ég er ekki hrifinn af stóriðju í miklum mæli en menn verða þá að vera tilbúnir með e-r lausnir sem myndu þá veita íbúum þessara svæða sömu tækifæri., ekki bara tala og tauta um að sleppa stóriðjunni og vona það besta. Ef ég byggi úti á landi myndi ég ekki vilja kjósa flokk með svona hugarfari og taka þá í e-u lottói um framtíð mína og minna .. Samfylkingin hefur útbúið flotta stefnuskrá með hlutum sem koma sér vel fyrir fólkiðí landinu en af hverju ætli Samfylkingin sjái fram á að geta látið þessa hluti verða að veruleika einfaldlega vegna þess að þau gera sér grein fyrir þessum grunni sem Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa byggt á undaförnum 12 árum. Ef landið veri jafn illa rekið og þau vilja af láta þá eru forendurnar fyrir þeirra stenfuskrá ekki fyrir hendi.
Og talandi um að byggja kosningaráróður sinn á því að beina sjónum á allt það slæma í fari annara heldur en það góða í sínu þá byggja td menn eins og Össur og Mörður sem báðir eru í Samfylkingunni sína báráttu í öllum þeim þáttum þar sem þeir koma í upp á því að tala niður um verk hinna flokkanna í staðinn fyrir að treysta á eigið ágæti og reyna að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Það virði ég við mann eins og Jón Sigurðsson að hann talar bara um stefnu síns flokks og hvað þeir eru búnir að gera og hvað þeir ætli sér að gera, og þannig manni treysti ég til þess að stjórna þessu landi ..
Árangur áfram - Ekkert stoppJón Sigurđsson

Skv nýjustu könnunum er Framsókn í sókn og orðið stærra heldur en VG á landsvísu .. Þetta eru jákvæðar fréttir fyrir mann eins og mig en koma mér ekkert á óvart miðað við framgöngu VG manna í umræðaþáttum síðustu daga .. Þeir hafa ekki getað fært nein rök fyrir því hvernig þeir ætla að byggja upp atvinnulífið á landsbyggðinni sem koma ætti í staðinn fyrir td stóriðjuna og alla þá "spillingu" á landinnu eins og þeir orða það .. Málið er að fólkið á landsbyggðinni þarf að fá vissu fyrir ákveðnu atvinnuöryggi í sinni heimabyggð og það eru VG því miður ekki að geta veitt, allavega hafa þeir ekki getað fært nein almennilega rök fyrir því í þessum rökræðuþáttum .. Núna verðum við bara að leggja enn meira á okkur og fá ennþá meiri vind í seglin fyrir næstkomandi laugardag ..
kv
jónsig
American IdolJón Sigurđsson
Þótt ótrúlegt megi virðast þá horfa ég sjaldan eða aldrei á Idol, ég fylgdist einna helst með þessu þegar sálufélagi minn hann Clay
var að etja kappi við menn á borð við Ruben en annars hafa þessir þættir farið að mestu framhjá mér .. En ég var í góðu gamniá mánudagskvöldið að taka upp demó af laginu Inn um gluggann og var með kveikt á sjónvarpinu .. Þá var Bon Jovi þegma +í þáttunum sem var bar nokkuð nett allavega var þessi þáttur bara mjög góður en það sem toppaði þetta allt saman og gerir það að verkum að ég verð upptekinn næsta mánudagskvöld er að þá verður Barry Gibb
einn BeeGees bræðra gestur í þættinum og fyrir svona forfallinn aðdáanda BeeGees þá lætur maður ekki svona viðburð sér úr greipum ganga .. Þannig að ég hvet alla til þess að horfa á American Idol næsta mánudagskvöld og sjá lifandi goðsögn á skjánum .. Síðahærða sjarmörinn og snillinginn Barry Gibbkv
jónsig
Ef ţiđ eruđ í vafa ..Jón Sigurđsson
Núna styttist í kosningar og margir sem eru í vafa ..http://xhvad.bifrost.is/
Klikkið á þennan link og þið sjáið með hvaða flokki þið eigið samleið, auðvitað tók strákurinn prógfið og kom út sem þessi fíni Framsóknarmaður ..
Þetta fékk ég út ..
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 37.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 60%
Stuðningur við Samfylkinguna: 25%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 25%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 9%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 20%
Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Framsóknarflokksins!
Endilega segið mér hvað þið fáið útúr þessu ..
kv
jónsig
Endilega segið mér hvað þið fáið útúr þessu ..
kv
jónsig
Prinsessan á bauninni ..Jón Sigurđsson
Jæja óhætt er að segja að aðgerðin á litlu prinsessunni hafi gengið framar vonum og krossleggur maður bara fingurna í von um hámarksárangur .. Sogið var mikið magn af slími og drullu upp úr lunganu og vonandi að það verði til þess að hún losni við þennan kvilla sem hefur hrjáð hana frá fæðingu .. allavega er sú litla hin sprækasta þessa stundina og vonandi að það haldi áfram ..
Allavega skemmtum við okkur vel um helgina feðginin og bökuðum vöflur sem runnu svo jafnóðum ofan í hugraða maga´hjá mér og Maren ..
kv
jónsig
Komandi kosningar ..Jón Sigurđsson
Flestir sem þekkja mig og fyrir hvað ég stend vita að ég er harður Framsóknarmaður og hef ætíð haft mikin áhuga á stjórnmálum .. .Gaman hefur verið að fylgjast með Stöð2 fara yfirreið um landið og spyrja frambjóðendur spjörunum úr, enda nauðsynlegt að kjósendur fái að kynnast þessu fólki aðeins meira en það gerir í dag ..
Ég hef að undaförnu verið að kynna mér stefnuskrá flokkana og er ég mannasáttastur við stefnuskrá míns flokks allavega hvað varðar þau málefni sem snúa að mér og mínu fólki ..

Helstu áherslumálefni Framsóknarflokksins á næstu árum eru ma:
* Ókeypis tannvernd til 18 ára aldurs & að auka niðurgreiðslur á tannviðgerðum
* Lengja fæðingarorlof í 12 mánuði
* Vinna að styttingu vinnutíma & auknum sveigjanleika í vinnu
* Sveigjanleg starfslok á vinnumarkaði
* Hækkun frítekjumarks á atvinnutekjur lífeyrisþega
* Frítekjumark verði sett á greiðslur úr lífeyrissjóðum
* Draga enn frekar úr tekjutengingum á barnabótum
* Lækka VSK á lyfjum & barnavörum úr 24,5% í 7%
* Bæta stöðu þeirra sem skitpa um starfsvettvang v atvinnumissis eða örorku
* Auka þáttöku hins opinbera í nauðsynlegum ferðakostnaði sjúklinga
* Fjölbreytt meðferðarúrræði fyrir unga fíkla
* Að fjölbýlum á dvalar- & hjúkrunarheimilum verði breytt í einbýli
* Einfalda almannatryggingakerfið
* Draga markvisst úr tvísköttun lífeyris
* Auka framboð á dagvistar & hvíldarrýmum
* Efla enn frekar allar forvarnir & vinna að bættri lýðheilsu þjóðarinnar
* Auka heimahjúkrun & félagslega heimaþjónustu sveitarfélaga þannig að öldruðum verði kleift að búa sem lengst heima hjá sér
Undanfarin ár hafa farið í að bæta og styrkja grunn íslenska hagkerfisins sem hefur það tekist bara nokk vel enda hefur kaupmáttur á Íslandi aukist allverulega síðustu ár .. Og þar sem að hagkerfið er orðið frekar sterkt þá ætti að gefast meiri peningur og tími til þess að stuðla að flestum þessara málefna að ofan enda öll mjög brýn og hefðu í raun þurft að gerast í gær ..
Fólk er oft að tala um fátækt á Íslandi og allt þar frameftir götunum en það vita það allir að fátækt verður aldrei útrýmt en það er hægt að draga úr henni og hlutverk ríkisstjórnarinnar í þeim málefnum er að leggja til leiðir og lausnir fyrir það fólk sem hefur ratað í ógöngur en það er aftur á móti ekki hlutverk ríkisstjórnarinnar að neyða þetta fólk til þess að nýta sér þessar leiðir, heldur verður þetta fólk að vilja sjálft takast á við þennan vanda og vera tilbúið að leggja hvað það getur á sig til þess að svo takist ..
En ég treysti mínum flokki til þess að lagfæra þá hluti í þjóðfélaginu sem þörf er á og þarafleiðandi krossa ég við xb þann 12 maí ..
kv
jónsig
Mikil eyđsla bćđi tíma & peningaJón Sigurđsson
Jæja þá er þessari svaðilför með vinnunni til London lokið .. Ljóst er að nokkur met voru slegin í þessari ferð hvað varðar yfirferð á borginni og eyðslu peninga, allur laugardagurinn fór í að versla og voru margir gáttaðir á því hvað maður gat týnt til af drasli á svona skömmum tíma .. Allavega var þetta góð ferð þar sem mestöll London var tekin á tveimur dögum ..Núna er stráksi búinn að sækja um í HR og maður krossleggur bara fingur í von um inngöngu, það er bara vonandi að allt gangi að óskum og maður geti farið að ljá HR krafta sína siðladags í haust ..
Núna er stefnt að því að litla músin okkar hún Maren fari í þessa langþráðu aðgerð í næstu viku svo framarlega sem hún veikjist ekki í millitíðinni. Svo er bara að vona að þessi aðgerð skili okkur einhverju svo prinsessan geti farið að lifa lífinu án þessara kvilla sem hafa elt hana frá fæðingu ..
Hvað tónlistina varðar þá er ég að fara að spila á skemmtikvöldi hjá Stjörnunni í Garðabæ um næstu helgi og verður þar væntanlega taumlaus gleði eins og þeim garðbæingum er von og vísan ..
allavega have fun í bili ..
kv
jónsig
Spennandi dagar ..Jón Sigurđsson
Núna fara í hönd spennandi dagar .. Strax eftir vinnu ætla ég að prufa að skella mér í ultraton sem ég veit ekki hvað er en fer með vinnufelaga minum .. Sjáum hvernig það tekst til .. Um helgina gista Helga Sóley og Einar Bjarki hjá okkur og verður þar mikið fjör á bæ enda Maren farin að fá hundleið á okkur Evu og okkar aðgerðarleysi í barnasköpun .. Eins er ég að spila á morgun í nettu giggi á Hótel Örk en fer svo beint eftir það á risa reunion hjá árgöngum 75, 76 og 77 ú rBreiðholtsskóla .. Verður gaman að berja þetta lið augum aftur og sjá horft e-r þeirra hafi tekið einhverjum framförum ..Eftir rúma förum við vinnufélagarnir til London og verðum þar yfir helgina .. Það er svaðalega freistandi að lengja ferðina og reyna að komast á leik Chelsea-Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar sem verður háður þriðjudaginn þar á eftir .. Hvort það tekst verður að koma í ljós ..
Ég ligg ennþá undir feldi varðandi hvort ég stefni á HR eða HÍ næsta haust, margir góðir hafa komið með gagnleg ráð sem ég kem til með að nota þegar ákvörðunin verður tekin .. Allavega er það ljóst að ég mun ganga menntaveginn næsta haust en með hvaða liði skýrist á næstu dögum ..
kv
jónsig
Veikindi ofan á veikindi ..Jón Sigurđsson
Eins og þessir páskar lofuðu góðu þá fór nú ekki allt sem skyldi .. Litla prinsessan hún Maren rauk upp í hita á laugardeginum og var mjög slöpp það sem eftir lifði dags en var nú samt sínu sprækari á páskadag.. Við ákváðum að halda okkur samt við þau áform að fá fjölskyklduna í mat og tókst það bara mjög vel þar sem undirritaður sá um eldamennskuna af stakri snilld þó ég segi sjálfur frá ..
Eitt skyggði þá á þessa páska og það góða frí sem þeim fylgir en það er að heilsu móður minnar hrakaði illilega um páskana, við erum á fullu að funda með læknum og hjúkrunarfólki til þess að fá einhvern botn í þetta og af hverju henni hrakar svona ört ..
kv
jónsig